Markmið náttúruvísindabrautar er að stuðla að góðu almennu námi með áherslu á stærðfræði, náttúru- og raunvísindi. Brautinni lýkur með stúdentsprófi og við lok náms á henni eiga nemendur að hafa öðlast góðan undirbúning fyrir greinar á háskólastigi á borð við eðlisfræði, efnafræði, hagfræði, heilbrigðisgreinar, jarðfræði, landfræði, líffræði, stjörnufræði, stærðfræði, tölvunarfræði, verkfræði og aðrar greinar þar sem góðs undirbúnings í stærðfræði, náttúru- og raunvísindum er krafist.
Forkröfur
Til þess að geta innritast á náttúruvísindabraut þarf skólaeinkunn nemandans í 10. bekk grunnskóla að vera að lágmarki B í íslensku, ensku og stærðfræði.
Skipulag
Til að teljast hafa lokið náttúruvísindabraut þarf nemandi að ljúka 200 einingum. Gert er ráð fyrir að námstími sé u.þ.b. 3 ár og að nemandi ljúki 33-34 einingum á önn. Nemandinn tekur 110 eininga kjarna sem sameiginlegur er með öllum stúdentsbrautum skólans. Jafnframt tekur nemandinn 60 eininga brautarkjarna. Val nemandans samanstendur af 30 einingum. Þar af velur nemandinn 10 einingar úr bundnu áfangavali en 20 einingar eru frjálst val nemandans. Nám á náttúruvísindabraut er bóklegt og fer að mestu eða öllu leyti fram innan veggja skólans.
Námsmat
Námsmat á náttúruvísindabraut er fjölbreytt. Gert er ráð fyrir að leiðsagnarmati sé beitt í sem mestum mæli á brautinni en í því felst að nemandi fái stöðugt endurgjöf um hvar hann stendur í námi. Í upphafi hvers áfanga skal nemanda kynnt námsáætlun þar sem fram kemur hvernig námsmati skuli háttað í áfanganum. Nánari útfærsla á tilhögun námsmats er í höndum kennara í hverjum áfanga. Frekari upplýsingar um námsmat er að finna á heimasíðu skólans.
Reglur um námsframvindu
Um alla áfanga á náttúruvísindabraut gildir nemandi þarf að ná lágmarkseinkunninni 5 til að teljast hafa staðið þá. Í þeim tilfellum sem áfangi hefur undanfara þarf nemandi að standast hann til þess að geta hafið nám í næsta áfanga á eftir. Gert er ráð fyrir að nemandi ljúki að jafnaði 33-34 einingum á önn en nemanda er frjálst að taka fleiri eða færri einingar á önn eftir getu og áhuga. Ekki er sett skilyrði um að nemandi þurfi að ljúka ákveðnum einingafjölda á önn til þess að geta flust milli anna.
Hæfnisviðmið
- beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
- beita gagnrýninni hugsun við að afla fullnægjandi raka fyrir skoðunum sínum og annarra
- gera sér grein fyrir því hvaða lífsvenjur eru uppbyggilegar fyrir andlegt og líkamlegt heilbrigði
- gera sér grein fyrir réttindum sínum og skyldum í þjóðfélagi jafnréttis, lýðræðis og sjálfbærni
- gera sér grein fyrir eigin styrkleikum og veikleikum í námi
- axla ábyrgð á eigin námi
- beita vísindalegri hugsun og aðferðum við greiningu viðfangsefna, öflun upplýsinga, mælingar, mat, úrvinnslu og túlkun
- fjalla um og taka þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags
- lesa, miðla, útskýra og rökræða fræðilegt efni á íslensku
- uppfylla strangar kröfur um meðferð heimilda og framsetningu fræðilegs texta
- skilja margvíslega texta og eiga flókin samskipti á ensku
- skilja einfalda texta og eiga einföld samskipti á tveimur tungumálum til viðbótar
- skilja og setja fram rannsóknarniðurstöður á sjálfstæðan hátt og með gagnrýnu hugarfari
- takast á við frekara nám í stærðfræði, náttúruvísindum, raunvísindum, heilbrigðis- og tæknigreinum á háskólastigi.