ÍSLE3EE05(42) - Bókmenntir og bókmenntasaga eftir 1900

Bókmenntir og bókmenntasaga eftir 1900.

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍSLE3BÓ05(31)
Í áfanganum er fjallað um íslenskar bókmenntir á 20. og 21. öld í samhengi við strauma og stefnur í þjóðfélags- og menningarmálum hérlendis og erlendis á sama tímaskeiði. Nemendur kynnast helstu skáldum og rithöfundum tímabilsins, lesa verk eftir þá og reyna að átta sig á erindi þeirra við eigin samtíma og nútímann. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í kennslustundum.

Þekkingarviðmið

  • bókmenntasögu 20. og 21. aldar
  • erlendum menningarstraumum á íslenskar bókmenntir á tímabilinu
  • helstu hugtökum sem tengjast bókmenntastefnum tímabilsins
  • helstu bragarháttum, myndmáli og stílbrögðum sem notuð voru í ljóðum á tímabilinu.

Leikniviðmið

  • lesa ljóð, smásögur og skáldsögur frá tímabilinu
  • lesa upphátt eigin texta og annarra með áherslu á ólíka viðtakendur og tilefni
  • semja eigin texta með mismunandi stíl
  • greina ólíka bragarhætti og lesa úr myndmáli og stílbrögðum ljóða frá tímabilinu
  • vinna undir leiðsögn kennara að bókmenntakynningu sem felur í sér greiningu bókmenntatexta, upplýsingaöflun og lestur fræðitexta og flytja munnlega með áherslu á framkomu og framsögn
  • skrifa ritgerð sem byggist á greiningu og túlkun texta með aðstoð hugtaka úr bókmenntafræði
  • nota handbækur og hjálparforrit um stafsetningu, meðferð heimilda og framsetningu texta.

Hæfnisviðmið

  • gera sér grein fyrir hlutverki bókmennta í samfélaginu og áhrifum þeirra á einstakling og samfélag
  • gera grein fyrir nokkrum helstu höfundum og verkum tímabilsins
  • átta sig á listrænum einkennum ljóða, smásagna og skáldsagna frá tímabilinu og þeim ólíku bókmenntastefnum sem verkin tilheyra
  • greina málfarsleg áhrif mismunandi stíls og atriði sem lúta að framsetningu máls
  • tjá sig munnlega um efni áfangans með áherslu á skýra framsögn og örugga framkomu
  • skrifa vandaðan texta þar sem samhengis í efni er gætt og heimildir eru notaðar á ábyrgan hátt
  • axla ábyrgð á eigin námi
  • taka virkan þátt í kennslustundum
  • beita lýðræðislegum vinnubrögðum í hópvinnu
  • tjá skoðun sína á námsefni, námsmati og fyrirkomulagi kennslu
  • tileinka sér jákvætt viðhorf til móðurmáls og eigin málnotkunar
Nánari upplýsingar á námskrá.is