1.tbl. 37.árg. föstudaginn 3. janúar 2025. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Halldór Jón Gíslason
Velkomin til starfa á nýju ári!
Húslestur hefur ýmsar upplýsingar að geyma. Lesið hann vandlega. Lesið einnig vel um brautalýsingar og áfanga á vef skólans. Þá er oft ýmsar upplýsingar og tilkynningar að finna á tilkynningatöflu við nemendainngang.
Skrifstofa skólans opnar kl. 8:10 mánudaginn 6. janúar.
Kennsla hefst svo samkvæmt stundatöflu, mánudaginn 6. janúar klukkan 08:10. Ath. engir örtímar þessa önn.
Starfsbraut byrjar mánudaginn 6. janúar.
Athugið að skólagjöld þurfa að hafa verið greidd til þess að hægt sé að opna Innu. Varðandi dagskrá annarinnar má nefna að vörðuvika verður haldinn 10. til 14. febrúar. Dillidagar eru 10. til 14. mars. Próf verða frá 12. til 21. maí og önninni lýkur með útskrift þann 23. maí.
Starfsfólk skólans
Skólameistari: Valgerður Gunnarsdóttir. Viðtalstímar eftir samkomulagi.
Aðstoðarskólameistari: Halldór Jón Gíslason. Viðtalstímar eftir samkomulagi mánudag-fimmtudags kl. 8:15-12:00.
Námsráðgjafi: Elín Pálmadóttir. Viðtalstímar verða auglýstir síðar.
Skólahjúkrunarfræðingur: Díana Jónsdóttir. Viðtalstímar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13-14.
Ritari og fjármálastjóri: Arna Ýr Arnarsdóttir. Ritari er við kl. 8-16 mánudaga til fimmtudaga, föstudagar frá 8-12.
Umsjónarmaður húsnæðis: Gunnar Þór Guðmundsson. Viðtalstímar á mánudögum til fimmtudags frá 8-16.
Umsjónarmaður tölvukerfis: Róbert Bjarnason. Almennur viðverutími á mánud. kl. 10-11 og fimmtud. kl. 10-11.
Kennarar á vorönn 2024
Ásta Svavarsdóttir Íslenska, kynjafræði.
Björgvin Friðbjarnarson Stærðfræði, líffræði, umhverfis og auðlindafræði.
Elín Pálmadóttir Félagsvísindi og íþróttir.
Eva Margrét Árnadóttir Efnafræði.
Hildur Eva Guðmundsdóttir, Félagsvísindi og danska.
Karolína Kr. Gunnlaugsdóttir Líffræði, stærðfræði og saga.
Rakel Dögg Hafliðadóttir Sálfræði, stærðfræði og næringarfræði.
Sigurður Narfi Rúnarsson Rafíþróttir, forritun og landafræði.
Smári Sigurðsson Enska, þýska
Allir kennarar hafa viðtalstíma og verða þeir auglýstir síðar á töflu á nemendagangi.
Efnisyfirlit.
1. Umsjónakennarar og umsjónatímar
2. Inna og innuaðgangur
3. Húsnæði
4. Skólareglur
5. Töflubreytingar
6. Íþróttir
7. Kennsluvefur
8. Heilsunudd
9. Aðrar upplýsingar