2. tbl. 31. árg. mánudaginn 14. september 2020. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Halldór Jón Gíslason
Efni:
- Fyrsta fjarvistatalning annarinnar. Viðmið er 90% mæting á tímabilinu að teknu tilliti til veikinda og leyfa. Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum auk afrits í tölvupósti eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri. HÉR má sjá hvernig skoða má viðveru í Innu. Mætingarreglur FSH.
- Val fyrir vorönn 2020 hefst 17.09.2020 og lýkur mánudaginn 26. október nk. Hægt er að skila athugasemdum við valframboð til aðstoðarskólameistara fram til 1. október. Nemendur velja með aðstoð umsjónakennara í vinnustundum í valviku 5-9.október. Leiðbeiningar um val í Innu er að finna Hér.
Ath. að þeir sem ekki skila vali í Innu verða ekki með í stundatöflugerð fyrir vorönn 2020. Þannig gildir valið sem umsókn um skólavist.
Umsjónarkennarar geta kallað á einstaka nemendur eða hóp nemenda í viðtalstímum.
Upplýsingar um námsbrautir skólans
Undanfarareglur áfanga í nýju kerfi
Athugið vel að það að áfangi sé í boði þýðir ekki endilega að hann verði kenndur. Eftir því sem fleiri velja áfanga aukast líkurnar á að hann verði kenndur.
Endanlegt valframboð mun liggja fyrir mánudaginn 5. október.
Drög að valframboði er að finna HÉR.
- Brautaskipti: Nemendur, sem vilja skipta um braut þurfa að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem allra fyrst.
4.Frestur til að segja sig úr áföngum
Í kjölfar breyttra reglna um námsmat í framhaldsskólum hefur verið ákveðið að setja frest á skráningu nemenda úr áföngum. Fresturinn er til 19. október. Ef nemandi hættir í áfanga eftir þann tíma verður það skráð sem fall í viðkomandi áfanga.