Húslestur 16.08.2024

6.tbl. 36.árg. þriðjudaginn 16. ágúst 2024. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Halldór Jón Gíslason

Kæru nemendur, velkomin til starfa á nýju skólaári!

Húslestur hefur ýmsar upplýsingar að geyma. Lesið hann vandlega. Lesið einnig vel um brautalýsingar og áfanga á vef skólans. Þá er oft ýmsar upplýsingar og tilkynningar að finna á tilkynningatöflu við nemendainngang. Nemendur munu einnig fá sendar upplýsingar í tölvupósti og mikilvægt að fylgjast vel með.

Skrifstofa skólans opnar kl. 8:10 á daginn.

Haustönn hefst með skólasetningu í sal skólans mánudaginn 19. ágúst 2024 klukkan 10:00, örtímar hefjast svo að henni lokinni klukkan 10:30, örtímatöflu má sjá í þessum Húslestri. Kennsla hefst svo samkvæmt stundatöflu, þriðjudaginn 20. ágúst klukkan 08:10.

Starfsbraut byrjar þriðjudaginn 20. ágúst klukkan 08:10.

Athugið að skólagjöld þurfa að hafa verið greidd til þess að hægt sé að opna Innu. Varðandi dagskrá annarinnar má nefna að vörðuvika verður haldinn 16.september-20.september. Próf verða frá 9. desember til 17. desember og önninni lýkur með prófsýningu 19. desember.

Starfsfólk skólans
Skólameistari: Valgerður Gunnarsdóttir. Viðtalstímar eftir samkomulagi.
Aðstoðarskólameistari: Halldór Jón Gíslason. Viðtalstímar eftir samkomulagi mánudag-fimmtudags kl. 8:15-12:00.
Námsráðgjafi: Elín Pálmadóttir. Viðtalstímar verða auglýstir síðar.
Skólahjúkrunarfræðingur: Díana Jónsdóttir. Viðtalstímar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13-14.
Ritari og fjármálastjóri: Arna Ýr Arnarsdóttir. Ritari er við kl. 8:10-15 mánudaga til fimmtudaga, föstudagar frá 8:10-12.
Umsjónarmaður húsnæðis: Gunnar Þór Guðmundsson.
Umsjónarmaður tölvukerfis: Róbert Bjarnason. Almennur viðverutími á mánud. kl. 10-11 og fimmtud. kl. 10-11.

Kennarar á haustönn 2024

Ásta Svavarsdóttir; Íslenska.
Björgvin Friðbjarnarson; Líffræði, efnafræði og stærðfræði
Elín Pálmadóttir Félagsvísindi og íþróttir.
Elsa Björk Skúladóttir; Starfsbraut
Eva Margrét Árnadóttir; Efnafræði, eðlisfræði og afbrotafræði.
Hildur Eva Guðmundsdóttir; Danska og heimspeki.
Karolína Kristín Gunnlaugsdóttir; Saga og lífsleikni.
Rakel Dögg Hafliðadóttir; Sálfræði, félagsvísindi og stærðfræði.
Sigurður Narfi Rúnarsson; Rafíþróttir, fablab, vinnustofur og starfsbraut.
Smári Sigurðsson Enska; þýska

Allir kennarar hafa viðtalstíma og verða þeir auglýstir síðar á töflu á nemendagangi.

Helga Björg Sigurðardóttir Heilsunudd.

Leiðbeinendur
Alexia Annisius Askelöf
Anna Guðmundsdóttir
Arna Þórarinsdóttir

Efnisyfirlit.

1. Umsjónakennarar og umsjónatímar
2. Inna og innuaðgangur
3. Húsnæði
4. Skólareglur
5. Töflubreytingar
6. Örtímatafla
7. Íþróttir
8. Kennsluvefur
9. Heilsunudd
10. Aðrar upplýsingar