Kennsluvefur Framhaldsskólans á Húsavík er að finna á slóðinni https://moodle.fsh.is/.
Á Kennsluvefinn setja kennarar inn efni sem tengist áföngum sem þeir kenna, s.s. námsáætlanir, glærur, myndbönd, verkefni og próf. Mikilvægt er að ALLIR nemendur tengist Kennsluvefnum og noti hann reglulega.
Nemendur eru settir inn í áfanga af skrifstofu skólans.
Til þess að tengjast Kennsluvefnum þarf að hafa aðgangs- og lykilorð. Nemendur nota notendanafn og lykilorð að office pakkanum til þess að skrá sig inná kennsluvefinn. Notendanafnið er netfangið þeirra og lykilorðið er nemendanúmerið. Ef nemendur gleyma aðgangs- eða lykilorðum sínum eru þeir beðnir um að snúa sér til Örnu ritara.
Ef upp koma spurningar varðandi skráningu inn á Kennsluvefinn má leita til Örnu Ýr ritara.
Hér má finna leiðbeiningar um uppsetningu tveggja þátta auðkenningar, sem er nauðsynlegt að hafa sett upp áður en nemendur skrá sig inná kennsluvefinn.
https://www.fsh.is/is/thjonusta/thjonusta/tolvuthjonusta/hjalparskjol-vegna-flutnings-i-menntasky
Aðrar upplýsingar H24
Heilsunudd H24