bókmenntir, lesskilningur, ritun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: ENSK2RL05(11)
Í áfanganum er áhersla lögð á að nemendur verði vel læsir á flóknari texta en áður. Þeir eru þjálfaðir í að tileinka sér grunnorðaforða vísinda og fræða, að tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur vinna í auknum mæli sjálfstætt að stærri ritunarverkefnum og viðameiri verkefnum svo sem kynningum á þematengdu efni sem fela í sér öflun upplýsinga á bókasafni og af veraldarvef. Unnið er markvisst að því að efla sjálfstæði nemenda í námi.
Þekkingarviðmið
- helstu menningarsvæðum þar sem enska er notuð sem móðurmál eða fyrsta mál
- grundvallaratriðum í ritgerðarvinnu og almennri uppsetningu texta
- mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntaverka og dýpri merkingu texta
- grundvallaratriðum í enskri málfræði, s.s. þolmynd, germynd, flóknari tíðum sagna, forsetningum, beinni og óbeinni ræðu, tilvísunar- og skilyrðissetningum.
Leikniviðmið
- lesa fjölbreyttar gerðir texta og beita mismunandi lestraraðferðum, þ.e. nákvæmnislestri, yfirlitslestri, hraðlestri og leitarlestri og átta sig á hvaða lestraraðferð er viðeigandi hverju sinni
- tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
- tjá sig skriflega bæði á formlegan og óformlegan hátt
- hlusta á margvíslegt raunefni og draga úr því upplýsingar
- beita hjálpartækjum sem standa til boða til að bæta árangur í námi, s.s. orðabókum, leiðréttingarforritum, hljóðbókum o.s.frv.
Hæfnisviðmið
- taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara mótbárum og gagnrökum á viðeigandi hátt
- skrifa formlegan og óformlegan texta og beita rithefðum sem við eiga í textasmíð
- nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti
- draga út upplýsingar úr ensku talmáli á raunhraða
Nánari upplýsingar á námskrá.is