EFNA3LR05(42) - Lífræn efnafræði

lífræn efnafræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: EFNA3GE05(31)
Sérstaða kolefnis í lotukerfinu, svigrúmablöndun þess og tengjamöguleikar. Helstu flokkar lífrænna efna, nafngiftareglur þeirra (IUPAC kerfið) og hvarfgangur.

Þekkingarviðmið

  • þeim mun, sem er á ólífrænni og lífrænni efnafræði
  • Sérstöðu kolefnis í lífrænni efnafræði
  • Grundvallarbyggingaratriðum lífrænna sameinda og ísómerisma
  • Atóm- og mólikúlsvigrúmum, svigrúmablöndun og sameindalögun
  • byggingu og nafngiftum helstu flokka lífrænna efna
  • hvarfgangi helstu flokka lífrænna efna

Leikniviðmið

  • Rita byggingarformúlur eftir IUPAC nöfnum
  • Rita byggingarformúlur eftir "common" nöfnum einfaldra lífrænna sameinda
  • Rita IUPAC nöfn lífrænna efnasambanda
  • Rita "common" nöfn einfaldra lífrænna efnasambanda
  • Spá fyrir um efnahvörf lífrænna efna út frá hvarfefnum og skilyrðum (hvatar o.fl.) þess að hvarf gerist

Hæfnisviðmið

  • yfirfæra þekkingu sína á einföldum lífrænum efnum á flóknari, lífræn efnasambönd, svo sem sykrur, fituefni og prótein
  • Stunda nám í lífefnafræði
  • nýta þekkingu sína og leikni til að leysa verkefni, sem eru sambærileg en ekki þau sömu og hann hefur áður leyst,
Nánari upplýsingar á námskrá.is