Upphaf haustannar 2024

Mynd: Sigfús Sigfússon
Mynd: Sigfús Sigfússon

Nú er sumarleyfið senn á enda og skólinn að hefjast á ný.

Skólasetning verður mánudaginn 19. ágúst kl 10:00 og í beinu framhaldi verða örtímar.

Í örtímum er farið yfir starf annarinnar og ýmsar upplýsingar sem eru nauðsynlegar í upphafi skólastarfsins.

Kennsla hefst samkvæmt stundarskrá kl: 8:10, þriðjudaginn 20.ágúst.

 

TÖLVUR!

Róbert, tölvuumsjónarmaður okkar, verður við mánudaginn 19 ágúst og þriðjudaginn 20. ágúst frá kl 10:00-12:00 að hjálpa öllum nemendum með uppsetningu forrita.

Það er mjög mikilvægt fyrir alla nemendur að nota þá þjónustu.

Við hlökkum til að sjá ykkur öll kl 10 mánudaginn 19. ágúst .