Jónas Hallgrímsson. Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember ár hvert.
Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur á sal Framhaldsskólans á Húsavík í dag, þriðjudaginn 16. nóvember. Þá komu nemendur og starfsfólk saman á sal skólans og kepptu í leikjum og þrautum í anda Kappsmáls. Kappsmál er skemmtiþáttur um íslenskra tungu sem sýndur er í sjónvarpi allra landsmanna RÚV á föstudögum.
Ásta Svavarsdóttir íslenskukennari við FSH hafði sett saman þrautir og leiki og skipað í þrjú lið. Nemendur skipuðu tvö lið og starfsmenn eitt. Þetta var mikil og spennandi keppni, en það fór þó svo að lokum að lið starfsmanna hafði sigur úr býtum.
![](/static/files/_blob/9c03vhos1i4oq4xn7icr9.jpg)
Mynd af stjórnendum Kappsmál fengin af ruv.is