Rafíþróttir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Nemendur læra og afla sér þekkingar á rafíþróttum og eru búnir undir hvernig hægt er að kynna og spila rafíþróttir í nærumhverfinu, í frjálsri félagastarfsemi eða í frístundastarfi. Kenndir verða ákveðnir rafíþróttaleikir sem sérstakur áhugi er á eða hentar vel aðstæðum hverju sinni. Nemendur finni hlutverk sitt (spilari, þjálfari, skipuleggjari og fl.),skipuleggja æfingaleiki og sýna frá þeim á netinu, eiga í samskiptum við fyrirtæki um kostun á viðburðum.
Þekkingarviðmið
- Að halda viðburði utan skóla og leiðbeina öðrum um hvernig spilun leiks fer fram
- Hvernig er að vera hluti af liðsheild
- Hvernig mismunandi leikir krefjast mismunandi leikni og færni til að gera liðið betra
- Markaðs- og viðskiptafræði í heimi rafíþróttanna
Leikniviðmið
- Stunda íþróttina og öðlast góðan tæknilegan grunn í greininni
- Taka þátt í fjölbreyttum æfingum og leikjum sem tilheyra íþróttinni
- Stunda hreyfingu sem styrkir og gefur meira úthald til leikjaspilunnar
- Gera kostnaðaráætlun vegna viðburða
Hæfnisviðmið
- Skipuleggja viðburði t.d. skólasamkomu, netsamkomur og samkomur utan skólasamfélagsins
- Búa til kennslumyndbönd um ýmsa þætti rafíþróttarinnar
- Nýta sér upplýsingatækni við skipulagningu þjálfunar
- Afla kostunaraðila vegna viðburða
Nánari upplýsingar á námskrá.is