Algebra, hnitakerfið, hornaföll., jöfnur, rúmfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Grunnskólapróf
Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslum og lausnum verkefna og þrauta. Fjallað er um bókstafareikning, jöfnur, hnitakerfi, jöfnu beinnar línu og rúmfræði.
Þekkingarviðmið
- undirstöðuatriðum algebru
- þáttun og liðun algebrustærða
- lausnum á jöfnum
- reikniformúlum
- talnahlutföllum og prósentum
- rétthyrndu hnitakerfi
- frumhugtökum rúmfræðinnar
- flatarmáli og rúmmáli
- einslögun
- veldum og rótum.
Leikniviðmið
- nota hlutföll í útreikningum
- skilja samhengi talna og algebru, liða og þátta
- setja upp og leysa verkefni sem fela í sér jöfnur
- nota rétthyrnt hnitakerfi og setja fram jöfnu fyrir beina línu
- reikna rúmmál og flatarmál allra helstu forma.
Hæfnisviðmið
- skrá lausnir sínar og vinna á skipulegan hátt
- útskýra hugmyndir sínar og verk
- fylgja fyrirmælum sem gefin eru
- lesa úr stærðfræðilegum upplýsingum
- beita skipulegum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
Nánari upplýsingar á námskrá.is