Bókmenntir og bókmenntasaga eftir 1900.
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍSLE2BÓ05(21)
Í áfanganum er fjallað um íslenskar bókmenntir á 20. og 21. öld í samhengi við strauma og stefnur í þjóðfélags- og menningarmálum hérlendis og erlendis á sama tímaskeiði. Nemendur kynnast helstu skáldum og rithöfundum tímabilsins, lesa verk eftir þá og reyna að átta sig á erindi þeirra við eigin samtíma og nútímann. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í kennslustundum.
Þekkingarviðmið
- bókmenntasögu 20. og 21. aldar
- erlendum menningarstraumum á íslenskar bókmenntir á tímabilinu
- helstu hugtökum sem tengjast bókmenntastefnum tímabilsins
- helstu bragarháttum, myndmáli og stílbrögðum sem notuð voru í ljóðum á tímabilinu.
Leikniviðmið
- lesa ljóð, smásögur og skáldsögur frá tímabilinu
- lesa upphátt eigin texta og annarra með áherslu á ólíka viðtakendur og tilefni
- semja eigin texta með mismunandi stíl
- greina ólíka bragarhætti og lesa úr myndmáli og stílbrögðum ljóða frá tímabilinu
- vinna undir leiðsögn kennara að bókmenntakynningu sem felur í sér greiningu bókmenntatexta, upplýsingaöflun og lestur fræðitexta og flytja munnlega með áherslu á framkomu og framsögn
- skrifa ritgerð sem byggist á greiningu og túlkun texta með aðstoð hugtaka úr bókmenntafræði
- nota handbækur og hjálparforrit um stafsetningu, meðferð heimilda og framsetningu texta.
Hæfnisviðmið
- gera sér grein fyrir hlutverki bókmennta í samfélaginu og áhrifum þeirra á einstakling og samfélag
- gera grein fyrir nokkrum helstu höfundum og verkum tímabilsins
- átta sig á listrænum einkennum ljóða, smásagna og skáldsagna frá tímabilinu og þeim ólíku bókmenntastefnum sem verkin tilheyra
- greina málfarsleg áhrif mismunandi stíls og atriði sem lúta að framsetningu máls
- tjá sig munnlega um efni áfangans með áherslu á skýra framsögn og örugga framkomu
- skrifa vandaðan texta þar sem samhengis í efni er gætt og heimildir eru notaðar á ábyrgan hátt
- axla ábyrgð á eigin námi
- taka virkan þátt í kennslustundum
- beita lýðræðislegum vinnubrögðum í hópvinnu
- tjá skoðun sína á námsefni, námsmati og fyrirkomulagi kennslu
- tileinka sér jákvætt viðhorf til móðurmáls og eigin málnotkunar
Nánari upplýsingar á námskrá.is