Mál- og menningarsaga
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnskólapróf með hæfnieinkunnina B að lágmarki eða íslenskuáfangi á hæfniþrepi 1.
Í áfanganum er fjallað um sögu máls og menningar frá frumnorrænum tíma til okkar daga. Nemendur kynnast nokkrum atriðum í sögu íslensks máls frá öndverðu til nútíma, læra að lesa úr hljóðritunartáknum og kynnast helstu mállýskum á Íslandi. Nemendur kynnast norrænni goðafræði og hugmyndaheimi norrænna manna til forna auk þess sem þeir fá tækifæri til að tjá sig í ræðu og riti um efni áfangans. Nemendur fá þjálfun í ritgerðarsmíð og ábyrgri meðferð heimilda. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í kennslustundum.
Þekkingarviðmið
- uppruna og skyldleika indóevrópskra tungumála
- helstu málbreytingum sem orðið hafa frá frumnorrænu til íslensks nútímamáls
- meginatriðum íslenskrar málstefnu
- uppruna ritlistar og þróun skriftar
- áhrifum norrænnar tungu á önnur málsvæði
- helstu mállýskum á Íslandi
- breytingum á stíl íslensku frá upphafi ritunar til okkar daga
- dæmum um uppruna og skyldleika orða
- orðasmíð og merkingu
- íslenskum nafnasiðum
- mismunandi málsniðum og orðræðu við ólíkar aðstæður
- helstu atriðum í heimsmynd norrænnar goðafræði
- helstu goðum í norrænni goðafræði, hlutverki þeirra, vættum og öðrum átrúnaði
- grundvallaratriðum í meðferð heimilda.
Leikniviðmið
- hljóðrita einföld orð
- flytja fyrirlestur um kjörbók þar sem gætt er að framkomu og framsögn
- skrifa heimildaritgerð á vönduðu máli þar sem gætt er að samhengi í efni og áhersla lögð á ábyrga og vandaða meðferð heimilda
- nota handbækur og hjálparforrit um stafsetningu, meðferð heimilda og framsetningu texta.
Hæfnisviðmið
- fjalla á gagnrýninn hátt um hin sögulegu tengsl tungumáls og menningar
- rökræða um íslenska málstefnu
- tjá sig munnlega með áherslu á notkun bókmenntafræðilegra hugtaka, skýra framsögn og örugga framkomu
- skrifa vandaðan texta þar sem samhengis í efni er gætt og heimildir eru notaðar á ábyrgan hátt
- axla ábyrgð á eigin námi
- taka virkan þátt í kennslustundum
- tileinka sér jákvætt viðhorf til móðurmáls og eigin málnotkunar
- beita lýðræðislegum vinnubrögðum í hópvinnu
- tjá skoðun sína á námsefni, námsmati og fyrirkomulagi kennslu
Nánari upplýsingar á námskrá.is