Vettvangsferðir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Námið í áfanganum er að hluta til bóklegt og að hluta til fer það fram í vettvangsferðum. Fjallað er um samskiptareglur, öryggis- og umhverfismál, réttindi og skyldur og hættur í umhverfinu. Í vettvangsferðum kynnast nemendur helstu atvinnutækifærum í nærsamfélaginu og þeim möguleikum sem í þeim felast m.t.t. atvinnuþátttöku.
Þekkingarviðmið
- fjölbreyttum vinnustöðum í nærumhverfinu
- tilgangi starfs og mikilvægi þess í tengslum við önnur störf
- viðeigandi framkomu í vettvangsferðum
- hættum sem geta verið í starfsumhverfinu.
Leikniviðmið
- fara í vettvangsferðir og kynna sér sérsvið hvers staðar
- sækja sér upplýsingar um nýja og framandi vinnustaði.
Hæfnisviðmið
- þekkja mismunandi vettvangsstaði og átta sig á hlutverkum þeirra
- átta sig á mikilvægi þess að mæta stundvíslega
- fara í vettvangsferðir út frá námslegum markmiðum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is