Atvinnuþátttaka
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum er áhersla lögð á að nemendur kynni sér ýmis störf og mismunandi vinnustaði. Námið felur í sér að nemendur þjálfist í að beita mismunandi aðferðum og verklagi. Starfsnám getur farið fram í skólanum og úti á vinnustöðum. Með því að tengja námið við vinnustaði öðlast nemendur oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður skýrari.
Þekkingarviðmið
- fjölbreyttum vinnustöðum
- mikilvægi þjálfunar og undirbúnings áður en farið er út á vettvang
- mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
- þeim hættum sem geta verið í starfsumhverfinu.
Leikniviðmið
- beita fjölbreyttu verklagi
- vinna eftir skipulagi
- mæta til vinnu á réttum tíma
- fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
- fylgja samskiptareglum á vinnustað.
Hæfnisviðmið
- taka þátt í atvinnulífinu
- vinna verkefni sjálfstætt eða eftir leiðsögn
- hafa trú á eigin færni og sjálfstraust til þess að takast á við ný verkefni
- biðja um aðstoð ef þess þarf
- tilheyra starfsmannahópi.
Nánari upplýsingar á námskrá.is