SMFÉ1NA05(11) - Norðausturland
Norðausturland
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum er unnið með Norðausturland í víðu samhengi. Lögð er áhersla á að skoða hvað sveitarfélögin á svæðinu eiga sameiginlegt og hvaða þættir eru ólíkir.
Þekkingarviðmið
- nöfnum bæjarfélaga á Norðausturlandi
- fjölda íbúa á hverjum stað
- helstu kennileitum bæjarfélaganna
- helstu ferðamannastöðum á Norðausturlandi.
Leikniviðmið
- setja sig í spor ferðamanns og ferðast á hina ýmsu staði
- nefna og aðgreina bæjarfélög á Norðausturlandi
- leita mismunandi leiða í vinnuferlinu
- nálgast viðfangsefni á mismunandi hátt
- beita mismunandi aðferðum í vinnuferlinu.
Hæfnisviðmið
- tala um og/eða ferðast um Norðausturland
- taka eftir ólíkum viðfangsefnum
- greina á milli aðal- og aukaatriða
- hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar í umhverfinu
- tjá eigin skoðanir.
Nánari upplýsingar á námskrá.is