Peningar, tímahugtök, verðgildi
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Í áfanganum er áhersla lögð á peninga og gildi þeirra. Unnin verða mismunandi verkefni, farið í vettvangsferðir í verslanir, veraldarvefurinn nýttur og notaðir verða tilboðsbæklingar og spil. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Þekkingarviðmið
- íslenskum peningum
- gildi og meðferð peninga
- því að til eru fjölbreyttir gjaldmiðlar.
Leikniviðmið
- borga og/eða taka við viðeigandi peningaupphæðum
- þekkja íslenska peninga
- nýta sér og/eða vinna með peninga í víðu samhengi.
Hæfnisviðmið
- nýta sér peninga í athöfnum daglegs lífs
- framkvæma greiðslu eða borgun í réttu hlutfalli við útgjöld
- nýta sér viðeigandi hjálpartæki þegar það á við, s.s. reiknivél í símum
- átta sig á hvaðan peningarnir koma og mikilvægi þess að halda vel utan um þá.
Nánari upplýsingar á námskrá.is