Læsi, ritun, tjáning
Einingafjöldi:
Þrep: 0
Áhersla er lögð á læsi í víðu samhengi, s.s. á bókstafi og hljóð, umhverfi, tákn, reglur, samskiptamiðla, hugtök, tjáskipti, tilfinningar, lesefni og samskipti. Vinnuferlið miðast við að efla færni og sjálfsmynd nemenda til að takast á við lífið í framtíðinni, m.a. að efla samskiptalæsi og umhverfislæsi í þeim tilgangi að nemendur verði virkari og hæfari þátttakendur í jafnréttis- og lýðræðissamfélagi. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir, sjálfshjálparbækur, íslenska tónlist og fjölbreytt verkefni.
Þekkingarviðmið
- hugtakinu læsi í víðu samhengi
- mikilvægi tjáningar og skynjunar
- ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
- mismunandi tjáskiptaleiðum
- mikilvægi lesturs og bókmennta.
Leikniviðmið
- nýta sér upplýsingar á stafrænum miðlum
- tjá sig með fjölbreyttum leiðum
- vinna með texta sem hann hefur lesið og/eða hlustað á
- taka þátt í umræðum
- nýta sér leiðréttingarforrit og ýmiss hjálpargögn til verkefnavinnu, s.s. talgervla og tjáskiptaforrit
- lesa upp og/eða tjá sig fyrir framan aðra
- lesa og/eða hlusta á texta sér til gagns og gleði.
Hæfnisviðmið
- nýta sér læsi í víðu samhengi
- auka sjálfstraust sitt og trú á eigin málfærni í tjáningu og/eða ritun
- hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram í útvarpi, sjónvarpi og í netmiðlum
- lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
- tjá eigin skoðanir
- lesa í ýmsa texta, s.s. bækur, fréttir og fræðigreinar með eða án aðstoðar.
Nánari upplýsingar á námskrá.is