NÁMI
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Meginefni áfangans er námstækni, sjálfsstyrking og einstaklingsmiðuð hvatning. Helstu efnisþættir eru fjölmargar hliðar námstækni eins og tímaskipulag, glósu- og lestrartækni. Mikilvægi þess að vera meðvitaður um eigin heilsu og þá stjórn sem haft er á eigin heilsu og velgengni.
Aðal áhersla áfangans er mikið utanumhald kennara, einstaklingsmiðuð þjónusta gagnvart nemendum og mynda stuðningshóp fyrir nemendur í brottfallshættu. Ásamt þjálfun nemenda í að taka alhliða ábyrgð á sjálfum sér í námi og daglegu lífi.
Þekkingarviðmið
- Námstækni sem tæki til að ná árangri í námi og starfi.
- Markmiðssetningu.
- Heilsufari í víðum skilningi, eins og næringu, hreyfingu, andlegri líðan, hugarfari og svefni. Hvernig heilsufar tengist sjálfsmynd og gengi í daglegu lífi.
Leikniviðmið
- Beita góðri námstækni.
- Setja sér markmið.
- Taka ábyrgð á sjálfum sér í námi og daglegu lífi.
- Þekkja eigin styrkleika og veikleika.
Hæfnisviðmið
- Hafa sjálfstraust í verkefnum daglegs lífs.
- Skipuleggja eigin tíma.
- Ná eigin markmiðum í lífinu.
- Ljúka skilgreindu námi.
Nánari upplýsingar á námskrá.is