Endurvinnsla og endurnýting
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum er lögð megináhersla á endurvinnslu og endurnýtingu á öllum þeim hlutum sem nemendur vinna með. Samstarfs verður leitað við heimili og/eða fyrirtæki um að fá nytjavörur og endurnýta eða endurvinna þær. Áhersla er lögð á að nemendur yfirfari tæki og hluti sem þeir fá í hendur. Þau tæki og hlutir sem ekki er hægt að nota áfram eru tekin í sundur og flokkuð til endurvinnslu. Lagt er upp úr því að flokkunin sé í samræmi við reglur sem gilda um endurvinnslu.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi endurvinnslu í tengslum við umhverfisvernd
- virkni og tilgangi tækjanna/hlutanna sem unnið er með
- hvaða verðmæti eru oft fólgin í gömlum tækjum/hlutum.
Leikniviðmið
- taka tæki og hluti í sundur og setja saman aftur
- flokka tæki/hluti eftir tegundum, efni, notagildi og öðru sem áhersla er lögð á hverju sinni
- beita verkfærum við endurnýtingu tækja/hluta
- meta tæki og hluti út frá notagildi.
Hæfnisviðmið
- lagfæra ýmiss konar hluti og tæki
- leggja mat á notagildi ýmiss konar hluta og tækja
- auka færni sína til tjáningar á eigin skoðunum og samskipta við annað fólk
- efla læsi á ýmiss konar upplýsingar, bæði í texta- og talnaformi
Nánari upplýsingar á námskrá.is