20. öldin
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SAGA2YS05(21)
Valdir þættir úr sögu 19. og einkum 20. aldar verða teknir til íhugunar og gagnrýnnar skoðunar. Einkum verður fjallað um mannkynssöguna en aðstæður á Íslandi verða einnig skoðaðar í ljósi atburða í öðrum löndum. Hér er ekki um hefðbundna yfirlitssögu að ræða heldur verður leitast við að kafa dýpra í valið efni. Þeir þættir sem verða meginviðfangsefni áfangans eru: Nýlendutíminn og fyrri heimsstyrjöldin, millistríðsárin, kalda stríðið og atburðir líðandi stundar.
Þekkingarviðmið
- nýlendu- og heimsvaldastefnu stórveldanna á seinni hluta 19. aldar
- gangi fyrri heimsstyrjaldarinnar, aðdraganda hennar og eftirmálum
- pólitískum straumum og stefnum á millistríðsárunum, s. s. kommúnisma og nasisma
- upphafi og þróun kalda stríðsins og helstu stríðsátökum sem þá geisuðu
- málefnum sem eru í umræðunni á líðandi stund og geta greint sögulegar rætur þess og ferli
- helstu venjum og reglum við smíði heimildaritgerðar
Leikniviðmið
- greina tengsl 20. aldar við samtímann
- leita sér sögulegra upplýsinga með margvíslegum hætti
- meta gildi og áreiðanleika heimilda og nýta sér fjölbreyttar tegundir þeirra
- koma frá sér sögulegum texta á skýran hátt
- rita heimildaritgerð út frá helstu reglum og hefðum
- meta liðna tíma á víðsýnan og umburðarlyndan máta
Hæfnisviðmið
- koma söguþekkingu sinni og söguskilningi á framfæri með fjölbreyttum hætti
- sýna umburðarlyndi og víðsýni gagnvart sögulegum viðfangsefnum
- greina atburði samtímans út frá sögulegri þróun síðustu áratuga
Nánari upplýsingar á námskrá.is