Menningarsaga
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SAGA2YS05(21)
Í áfanganum er sjónum beint að menningarsögu Vesturlanda frá seinni hluta 19. aldar til dagsins í dag. Megináherslan verður á módernismann og þau tengsl sem hann hafði við tilurð nútímasamfélagsins. Síðasti þriðjungur áfangans er svo helgaður póstmódernismanum og þeim fjölmörgu spurningum sem upp koma í tengslum við hann. Nemendur skrifa heimildaritgerð og munu nokkrar kennslustundir lagðar undir þá vinnu.
Þekkingarviðmið
- helstu lista- og menningarstefnum 20. aldar
- tengslum stóratburða 20. aldar við helstu menningarstrauma hennar
- helstu reglum og venjum við smíði heimildaritgerðar
Leikniviðmið
- leita sér sögulegra upplýsinga með margvíslegum hætti
- meta gildi og áreiðanleika heimilda og nýta sér fjölbreyttar tegundir þeirra
- koma frá sér sagnfræðilegum texta á skýran hátt
- rita heimildaritgerð samkvæmt helstu reglum og hefðum
- meta liðna tíma á víðsýnan og umburðarlyndan máta
- beita gagnrýninni hugsun
Hæfnisviðmið
- taka þátt í skoðanaskiptum og rökræðum með jafningjum um sagnfræðileg efni
- sýna umburðarlyndi og víðsýni gagnvart sögulegum viðfangsefnum
- meta stöðu nútímamenningar með hliðsjón af samfélagsbreytingum undangenginna áratuga og alda
Nánari upplýsingar á námskrá.is