lífeðlisfræði, líffærafræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LÍFF2AL05(10)
Bygging og starfsemi frumunnar, frumusérhæfing og frumusamhæfing. Bygging og starfsemi allra helstu vefjagerða, líffæra og líffærakerfa dýra og plantna með áherslu á samanburðarlífeðlisfræði.
Þekkingarviðmið
- byggingu og starfsemi frumunnar
- frumusérhæfingu og frumusamhæfingu
- byggingu og starfsemi allra helstu vefjagerða, líffæra og líffærakerfa dýra og plantna
- hvernig lífverur í mismunandi búsvæðum leysa sömu vandamál á mismunandi hátt.
Leikniviðmið
- Nota smásjár við vefjaskoðun
- Teikna einfaldar skýringarmyndir af vefjum, líffærum og líffærakerfum
Hæfnisviðmið
- afla sér viðbótarþekkingar í líffæra- og lífeðlisfræði
- útskýra einfaldar skýringarmyndir af vefjum, líffærum og líffærakerfum
- útskýra starfsemi mismunandi vefja, líffæra og líffærakerfa
- gera sér grein fyrir hvernig kerfi lífverunnar miða að því að viðhalda innra jafnvægi þrátt fyrir breytingar á ytra umhverfi.
- nýta þekkingu sína og leikni til að leysa verkefni, sem eru sambærileg en ekki þau sömu og hann hefur áður leyst,
Nánari upplýsingar á námskrá.is