Endurvinnsla, endurnýting
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum er lögð megináhersla á endurvinnslu og endurnýtingu á öllum þeim hlutum sem nemendur vinna með. Samstarfs verður leitað við efnamóttöku sorphirðufyrirtækja um að fá nytjavörur sem þangað berast og endurnýta og/eða endurvinna þær. Áhersla er lögð á að nemendur yfirfari tæki og hluti sem þeir fá í hendur. Þau tæki og hlutir sem ekki er hægt að nota áfram eru tekin í sundur og flokkuð til endurvinnslu. Flokkunin verður í samræmi við reglur sem gilda um endurvinnslu.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi endurvinnslu sem umhverfismáls
- hvernig ýmis tæki og hlutir virka
- hvaða verðmæti eru oft fólgin í gömlum hlutum/tækjum
Leikniviðmið
- taka hluti og tæki í sundur og setja saman aftur
- flokka hluti eftir tegundum
- meta tæki og hluti út frá notagildi
Hæfnisviðmið
- lagfæra ýmiss konar hluti og tæki
- leggja mat á notagildi ýmiss konar hluta og tækja
- auka færni sína til tjáningar á eigin skoðunum og samskipta við annað fólk
- efla lesskilning sinn og læsi á ýmiss konar upplýsingar, bæði í texta- og talnaformi
Nánari upplýsingar á námskrá.is