inngangur að félagsvísindum
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um grunneiningar samfélagsins og þær skoðaðar frá sjónarhorni félagsvísinda. Fjallað er um samfélagið í ljósi þeirra áhrifa sem það hefur á einstaklinginn og líf hans. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á samfélögum nær og fjær svo að þeir verði færir um að taka virkan þátt í samfélagslegri umræðu og geti myndað sér skoðanir á upplýstan og gagnrýninn hátt. Nemendur kynna sér félagslega þætti sem stýra hugsun og athöfnum einstaklingsins og stefnt er að því að nemendur öðlist skilning á skipulagi eigin samfélags og annarra. Meginmarkmið áfangans er að nemendur átti sig á því hvernig samfélagið hefur áhrif á þá og hvernig þeir geta haft áhrif á samfélagið.
Þekkingarviðmið
- algengustu hugtökum félagsvísinda
- helstu áhrifavöldum í félagsmótun, s.s. fjölskyldu, skólum, félögum og fjölmiðlum
- mikilvægustu félagslegu festum ólíkra samfélaga og tilgangi þeirra
- helstu hugtökum stjórnmálafræðinnar, s.s. valdi,lýðræði og þrískiptingu ríkisvaldsins
- íslenskum vinnumarkaði, s.s. atvinnuþátttöku, launajafnrétti og hagsmunasamtökum
- samstarfi þjóða á alþjóðavettvangi, s.s. innan Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandsins og á sviði alþjóðlegra viðskipta
- réttindum og skyldum sínum gagnvart samfélaginu
- kynbundnu ofbeldi, hvernig það birtist í nánum samböndum og hvert megi leita eftir aðstoð vegna þess.
Leikniviðmið
- beita algengustu hugtökum félagsvísinda á skýran og skilmerkilegan hátt
- lesa um og skilja áhrif félagslegra festa í samfélaginu
- greina stöðu sína innan samfélagsins og þau áhrif sem einstaklingar geta haft í samfélaginu
- leggja mat á heimildir og upplýsingar í félagsvísindum
- setja fram niðurstöður sínar bæði munnlega og skriflega.
Hæfnisviðmið
- gera grein fyrir einkennum og þróun ólíkra samfélaga
- gera grein fyrir samspili þekkingar, umburðarlyndis og fordóma
- tjá sig skipulega og gagnrýnið um samfélagsleg álitamál
- beita öguðum vinnubrögðum, axla ábyrgð á eigin námi og vinna í samvinnu við aðra
Nánari upplýsingar á námskrá.is