Húslestur 03.01.2024

1.tbl. 36.árg. miðvikudaginn 3. janúar 2024. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Halldór Jón Gíslason

Velkomin til starfa á nýju ári!

Húslestur hefur ýmsar upplýsingar að geyma. Lesið hann vandlega. Lesið einnig vel um brautalýsingar og áfanga á vef skólans. Þá er oft ýmsar upplýsingar og tilkynningar að finna á tilkynningatöflu við nemendainngang.

Skrifstofa skólans opnar kl. 8:10 fimmtudaginn 4. janúar

Vorönn hefst með örtímum fimmtudaginn 4. janúar 2024 klukkan 10:30, örtímatöflu má sjá í þessum Húslestri. Kennsla hefst svo samkvæmt stundatöflu, föstudaginn 5.janúar 2024.

Starfsbraut byrjar fimmtudaginn 4. janúar klukkan 10:00.

Við vekjum athygli á því að stofa 7 og 8 eru lokaðar á vorönn 2024 vegna framkvæmda. Nemendur geta því búist við einhverju raski á meðan á þeim framkvæmdum stendur. Kennsla hefur verið færð í stofu 1, 10 og 11.

Athugið að skólagjöld þurfa að hafa verið greidd til þess að hægt sé að opna Innu. Varðandi dagskrá annarinnar má nefna að vörðuvika verður haldinn 5. til 9. febrúar. Próf verða frá 10. til 23. maí og önninni lýkur með útskrift þann 25. maí.

Starfsfólk skólans
Skólameistari: Valgerður Gunnarsdóttir. Viðtalstímar eftir samkomulagi.
Aðstoðarskólameistari: Halldór Jón Gíslason. Viðtalstímar eftir samkomulagi mánudag-fimmtudags kl. 8:15-12:00.
Námsráðgjafi: Elín Pálmadóttir. Viðtalstímar verða auglýstir síðar.
Skólahjúkrunarfræðingur: Díana Jónsdóttir. Viðtalstímar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13-14.
Ritari og fjármálastjóri: Arna Ýr Arnarsdóttir. Ritari er við kl. 8-16 mánudaga til fimmtudaga, föstudagar frá 8-12.
Umsjónarmaður húsnæðis: Gunnar Þór Guðmundsson. Viðtalstímar á mánudögum til fimmtudags frá 8-16.
Umsjónarmaður tölvukerfis: Aðalgeir Sævar Sigurgeirsson. Almennur viðverutími á mánud. kl. 10-11 og fimmtud. kl. 10-11.

Kennarar á vorönn 2024
Ásta Svavarsdóttir Íslenska, kynjafræði.
Björgvin Friðbjarnarson Stærðfræði
Elín Pálmadóttir Félagsvísindi og íþróttir.
Eva Margrét Árnadóttir Efnafræði, umhverfis- og auðlindafræði og líffræði.
Hildur Eva Guðmundsdóttir, Félagsvísindi og danska.
Karolína Kr. Gunnlaugsdóttir Líffræði.
Rakel Dögg Hafliðadóttir Sálfræði, stærðfræði og næringarfræði.
Sigurður Narfi Rúnarsson Rafíþróttir, forritun og saga.
Smári Sigurðsson Enska, þýska
Valdimar Stefánsson Stærðfræði, landafræði.

Allir kennarar hafa viðtalstíma og verða þeir auglýstir síðar á töflu á nemendagangi.

Efnisyfirlit.

1. Umsjónakennarar og umsjónatímar
2. Inna og innuaðgangur
3. Húsnæði
4. Skólareglur
5. Töflubreytingar
6. Örtímatafla
7. Íþróttir
8. Kennsluvefur
9. Heilsunudd
10. Aðrar upplýsingar