Húslestur 12.9.2023

7. tbl. 35. árg. þriðjudagur 12. september 2023. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Halldór Jón Gíslason

Efni:

1. Fyrsta fjarvistatalning annarinnar. Viðmið er 90% mæting á tímabilinu að teknu tilliti til veikinda og leyfa. Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum auk afrits í tölvupósti eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri. HÉR má sjá hvernig skoða má viðveru í Innu. Mætingarreglur FSH.

2. Val fyrir vorönn 2024 hefst 18.09.2023 og lýkur föstudaginn 3. nóvember nk. Hægt er að skila athugasemdum við valframboð til aðstoðarskólameistara fram til 3. október. Nemendur geta valið með aðstoð umsjónakennara í vinnustundum í valviku 30-3.nóvember. Leiðbeiningar um val í Innu er að finna Hér.
Ath. að þeir sem ekki skila vali í Innu verða ekki með í stundatöflugerð fyrir vorönn 2024. Þannig gildir valið sem umsókn um skólavist.
Umsjónarkennarar geta kallað á einstaka nemendur eða hóp nemenda í viðtalstímum.
Upplýsingar um námsbrautir skólans
Undanfarareglur áfanga í nýju kerfi

3. Athugið vel að það að áfangi sé í boði þýðir ekki endilega að hann verði kenndur. Eftir því sem fleiri velja áfanga aukast líkurnar á að hann verði kenndur.
Endanlegt valframboð mun liggja fyrir miðvikudaginn 4. október.
Drög að valframboði er að finna HÉR.

4. Brautaskipti: Nemendur, sem vilja skipta um braut þurfa að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem allra fyrst.

5. Frestur til að segja sig úr áföngum
Í kjölfar breyttra reglna um námsmat í framhaldsskólum hefur verið ákveðið að setja frest á skráningu nemenda úr áföngum. Fresturinn er til 16. október. Ef nemandi hættir í áfanga eftir þann tíma verður það skráð sem fall í viðkomandi áfanga.