Húslestur 20.03.2020

4. tbl. 30. árgangur föstudaginn 20.mars 2020. Ritstj. og ábm. Halldór Jón Gíslason

1. Þriðja fjarvistatalning annarinnar. Þar sem námið fer fram rafrænt verður ekki tekin fjarvistatalning þetta tímabilið. Það er mjög mikilvægt að nemendur séu virkir á kennsluvefnum og haldi góðu sambandi við kennara sína á meðan að þetta ástand varir. Kennarar fylgjast vel með virkni nemenda í fjarnáminu og verða í sambandi við nemendur sem eru óvirkir á kennsluvef. Mætingarreglur FSH.

2. Vali fyrir haustönn 2020 lýkur miðvikudaginn 25.mars. Þeim sem hafa ekki valið, en vilja vera í námi á næstu önn, er bent á að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem fyrst. Hér má sjá valframboð fyrir haustönn 2020.

3. Próftafla vorannar 2020 er enn í drögum. Ekki er hægt að segja með fullri vissu hvenær endanleg próftafla mun liggja fyrir, gert er ráð fyrir að það verði 5. apríl. Fram að 23.mars er hægt að gera athugasemdir við próftöfluna hjá aðstoðarskólameistara. Prófareglur FSH má sjá HÉR. Athugið að í Innu getur hver nemandi séð upplýsingar þau lokapróf sem hann er sjálfur skráður í.

4. Nemendum, sem þjást af prófkvíða eða telja sig þurfa á sérúrræðum að halda við fyrirlögn prófa, er bent á að hafa samband við námsráðgjafa sem allra fyrst og alls ekki síðar en 17. apríl.

5. Umsókn um einingar fyrir félagsstörf. Hægt er að sækja um einingar fyrir félagsstörf skv. reglum um námsmat. Nemendum er bent á að kynna sér reglurnar vel! Sótt er um í tölvupósti til aðstoðarskólameistara. Umsóknarfrestur er til 17. apríl.

6. Innritun eldri nemenda, fæddra árið 2002 eða fyrr, fyrir haustönn 2019 hefst 7. apríl og lýkur 31. maí. Nemendur á vorönn 2019, sem hafa valið í Innu fyrir næstu önn, þurfa ekki að innrita sig sérstaklega.

7. Brautaskipti: Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af almennri braut yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við aðstoðarskólameistara sem allra fyrst.