Skólasóknarreglur V15
Meginregla: Nemendur eiga að mæta stundvíslega í allar kennslustundir.
Veitt er ákveðið svigrúm frá þessari meginreglu sem hér segir:
Heildarskólasókn nemenda má ekki vera undir 90%.
Skólasókn í hverjum einstökum áfanga má ekki vera undir 85%.
Leyfi frá skólasókn getur skólameistari og aðstoðarskólameistari gefið ef sérstakar ástæður liggja að baki. Öðrum er ekki heimilt að veita leyfi frá mætingu, hvorki til lengri eða skemmri tíma.
Viðverumerkingar í kennslustundum:
M = sjálfgefinn viðverukóði, nemandinn er í tímanum.
F = fjarvist úr 60 mínútna tíma. Gefur 1 fjarvistastig.
G = fjarvist úr 40 mínútna tíma. Gefur 0,67 fjarvistastig.
ATH. Komi nemandi of seint í kennslustund, þ.e. eftir að kennari er búinn að lesa upp og kennsla er hafin, telst nemandinn fjarverandi þá kennslustund.
Frádráttarliðir fjarvista:
V = veikindi
L = leyfi
A = töfluárekstur
Það svigrúm sem nemendur hafa skv. skólasóknarreglum geta þeir nýtt t.d. ef þeir þurfa nauðsynlega að bregða sér frá.
Veikindi skal tilkynna á skrifstofu skólans að morgni sama dags. Forráðamenn 16-17 ára nemenda skulu tilkynna veikindi barna sinna. Trúnaðarmaður (sem skólinn samþykkir) 18-20 ára nemenda skal tilkynna veikindi þeirra. Skólanum er heimilt að krefjast læknisvottorða vegna langtíma veikinda. Langveikum nemendum er bent á að hafa samband við stjórnendur skólans í upphafi annar.
Nemendum skal gefin einkunn í prósentum fyrir skólasókn. Skólasókn er ekki metin til eininga.
Í Aðalnámskrá er sérákvæði um undanþágur frá skólasókn fyrir fatlaða nemendur og afreksfólk í íþróttum.
Viðurlög: Nái nemandi ekki tilskilinni skólasókn í einum áfanga (þ.e. 85%) er litið svo á að hann hafi þar með sagt sig úr þeim áfanga. Fær hann þá skráða einkunnina H (hættur) fyrir áfangann í námsferil sinn. Fari nemandi niður fyrir leyfilegt lágmark í heildarskólasókn (þ.e. 90%) er litið á það sem úrsögn úr skólanum. Nemendur sem hafa sagt sig úr einstökum áföngum eða skóla vegna fjarvista hafa ekki leyfi til þess að þreyta próf í lok annar.
Meðferð mála: Ef útreikningar á fjarvistum benda til þess að nemandi segi sig frá skóla með sama áframhaldi skal senda honum áminningarbréf eða foreldrum/forráðamönnum ef nemandi er yngri en 18 ára. Segi nemandi sig úr skóla og/eða áfanga vegna brota á skólasóknarreglum ber að tilkynna honum það skriflega. Nemandinn hefur tímabundinn andmælarétt. Að auki getur nemandi sótt um undanþágu frá skólasóknarreglum til skólaráðs.
ATH.: Ætlast er til að nemendur fylgist sjálfir með fjarvistum sínum í Innu – engin fjarvistablöð verða afhent sérstaklega í umsjón!
Ef nemandi er ósáttur við fjölda skráðra fjarvista í áfanga skal hann strax hafa samband við viðkomandi kennara.
Nemendum er eindregið ráðlagt að halda sitt eigið fjarvistabókhald!