Fréttir FSH
1. september 2010
Skemmtiferđ nemenda FSH
Mánudaginn 30. ágúst héldu nemendur skólans í hina árlegu skemmtiferð. Að þessu sinni var ferðinni heitið til Akureyrar þar sem farið var í krullu í Skautahöllinni, grillað í Kjarnaskógi og endað í keilu í Keilunni. Mjög góð þátttaka var í ferðinni og skemmtu nemendur sér vel.
30. ágúst 2010
Kynningarfundur vegna afreksíţrótta
Kynningarfundur vegna afreksíþrótta í samvinnu FSH og Í.F.Völsungs á skólaárinu 2010-2011.
Framhaldsskólinn á Húsavík og Í.F.Völsungur boða til fundar með þeim nemendum sem stendur til boða og vilja taka þátt í afreksíþróttaáfanganum við skólann í samstastarfi við Í.F. Völsung. Jafnframt eru allir foreldrar/forráðamenn þessara nemenda boðaðir á fundinn.
Fundurinn verður í húsnæði skólans miðvikudaginn 1.sept. kl.20:00 í stofu 7.
27. ágúst 2010
Busavígsla í FSH

Nýnemar voru teknir inn í samfélag eldri nema skólans í gær. Það voru væntanlegir útskriftarnemar sem önnuðust vígsluna og þurftu busar að yfirstíga hinar ýmsu þrautir undir þeirra stjórn. Meðal annars tóku busar lagið fyrir bæði leik- og grunnskólanema, dönsuðu á torginu og sýndu líkamlegt atgervi sitt í fjörunni. Að venju hétu þeir skólanum hollustu sína og tryggð, að þessu sinni fór sú athöfnin fram í tjörninni. Að lokum var innvígðum boðið uppá súkkulaðiköku og svaladrykk við skólann. Myndir frá busavígslu eru hér.
20. ágúst 2010
Framhaldsskólinn á Húsavík settur í 24. sinn

Framhaldsskólinn á Húsavík var settur í dag og hóf skólinn þar með sitt 24. starfsár. Að þessu sinni hefja 36 nýnemar nám við skólann að loknum 10. bekk og koma þeir flestir úr Borgarhólsskóla.
Litlar breytingar eru á starfsliði skólans, Herdís Sigurðardóttir kemur til starfa á ný að loknu fæðingarorlofi, þá mun Karen Júlía Sigurðardóttir sálfræðingur annast námsráðgjöf og Brynhildur Gísladóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin skólahjúkrunarfræðingur í vetur.
9. ágúst 2010
Skólastarf í FSH fer senn ađ hefjast
Nú fer skólastarf í FSH senn að hefjast. Skrifstofa skólans opnar mánudaginn 16. ágúst og kennarar mæta til undirbúnings og fundahalda dagana 18. og 19. ágúst. Skólasetning fer fram á sal skólans föstudaginn 20. ágúst kl. 09.00 og eru foreldrar hvattir til að mæta með unga fólkinu. Að setningu lokinni hitta nemendur þá kennara sem munu kenna þeim á önninni og fá hjá þeim nánari upplýsingar um fyrirkomulag náms og kennslu. Kennsla samkvæmt stundaskrá hefst mánudaginn 23. ágúst.
28. maí 2010
Brautskráning og skólaslit

Framhaldsskólanum á Húsavík var slitið við hátíðlega athöfn í Húsavíkurkirkju föstudaginn 21. maí að viðstöddu fjölmenni. Að þessu sinni voru 27 nemendur brautskráðir frá skólanum, einn nemandi var brautskráður af starfsbraut, einn af almennri námsbraut II, einn nemandi var brautskráður með próf af skrifstofu- og tölvubraut og 24 nemendur voru brautskráðir með stúdentspróf, 13 af félagsfræðibraut og 11 af náttúrufræðibraut. Þá hafa samtals 649 nemendur verið brautskráðir frá skólanum, 365 með stúdentspróf, 63 iðnnemar og 221 með önnur próf.
27. maí 2010
Samningur um afreksíţróttir
Framhaldsskólinn á Húsavík og Íþróttafélagið Völsungur undirrituðu í dag samstarfssamning um kennslu afreksíþróttaáfanga. Afreksíþróttaáfangar eru ætlaðir þeim nemendum sem stunda æfingar með íþróttafélagi fjórum til sex sinnum í viku. Afreksíþróttaáföngum er því ætlað að styðja við íþróttaiðkun nemenda með það að markmiði að þeir nái sem bestum árangri í sínum greinum. Nemendur í afreksíþróttaáföngum skuldbinda sig til þess að temja sér heilbrigðan lífsstíl og vera örðum nemendum fyrirmyndir í þeim efnum.
19. maí 2010
Skólaslit og brautskráning nemenda
Framhaldsskólanum á Húsavík verður slitið við hátíðlega athöfn í Húsavíkurkirkju föstudaginn 21. maí og hefst athöfnin kl. 14.00. Að þessu sinni verða 27 nemendur brautskráðir frá skólanum, 24 með stúndentspróf og 3 af öðrum brautum.
30. apríl 2010
Jón
Í gærkvöldi fór kaffihúsakvöldið Jón fram í sal skólans. Löng hefð er fyrir Jóni og ýmislegt brallað á þeim kvöldum. Að þessu sinni varð félagsvist fyrir valinu og voru 10. bekkingar Borgarhólsskóla sérstakir heiðursgestir. Stemmingin var glimrandi góð og skemmti fólk sér konunglega. Arnhildur var stigahæst kvenna og Edith Ósk stigahæst karla en hún hljóp í skarðið fyrir karlpeninginn. Skammarverðlaun og stigalægst var Inga Ósk og hart var barist um setuverðlaunin en þau fékk að lokum Sigmar Darri. Dýrindis veitingar voru í sjoppunni en útskriftarnemar höfðu bakað dýrindis skúffukökur sem ruku út með ískaldri mjólk. Myndir frá kvöldinu er hægt að sjá í myndasafni. Nef þakkar öllum þeim sem mættu fyrir frábært kvöld.
27. apríl 2010
KAFFIHÚSAKVÖLDIĐ JÓN
Þá er loksins komið að hinu árlega kaffihúsakvöldi Jóni.
Það verður næst komandi fimmtudagskvöld, 29. apríl, í sal skólans.
Við ætlum að spila félagsvist og það eru skemmtilegir vinningar í boði.
Húsið opnar klukkan 20:00 og vistin hefst stundvíslega klukkan 20:30.
Útskriftarnemar verða með sjoppu á staðnum og dýrindis veitingar eins og t.d. skúffuköku.
Sérstakir heiðursgestir eru 10. bekkingar – tilvonandi nýnemar næsta skólaárs.
Hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest.
STJÓRNIN







